svipuð staða

Pabbi er enn svipaður. Nú er hann kominn með morfíndælu og það er búið að taka saltvatnið sem hann var með í æð. Við erum eiginlega alveg hætt að ná sambandi við hann nema svona eitt og eitt orð sem við fáum en hann er bara svo ótrúlega duglegur kallinn, alveg ótrúlegur. Mamma er bara fyrir sunnan hjá honum og við vorum í gær líka. Við skruppum út að borða og á meðan hrakaði honum mikið og hjúkkurnar hringdu í mömmu sem fór strax á staðinn. Líklegast er það vegna þess að hann var nýbúinn að fá morfíndæluna og þá slaknar auðvitað á öllu. Hann átti erfiða nótt í nótt, var mjög kvalinn og svona og fékk bara auka verkjalyf en þegar ég heyrði í mömmu í morgun þá svaf hann bara vært.

Ég reyni að leyfa ykkur að fylgjast með eins og ég get, ég vil líka þakka fyrir allar kveðjurnar og fallegu hugsanirnar ykkar, við finnum öll fyrir þeim.

Kær kveðja

Álfheiður SHe


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku fjölskylda, ég óska ykkur alls hins besta og hugsa til ykkar á hverjum degi og í raun oft á dag. Takk kærlega fyrir að leyfa okkur að fylgjast með hérna um bloggið hjá þér, Álfheiður. Þú ert engill :)

 

Skila innilegri baráttukveðju til allra frá okkur Kjartani Ottó

 

Bestu kveðjur

Anna Lóa

Anna Lóa (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 14:02

2 identicon

Elsku Álfheiður mín.

Ég sendi þér allar baráttukveðjur sem ég get og er oft búin að biðja Guð um að vera hjá ykkur.

Ég dáist að því hvað þú ert dugleg

Baráttukveðjur Steinunn Eik

Steinunn Eik Egilsdóttir (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 14:17

3 identicon

Elsku Álfheiður og fjölskylda, hugsa oft á dag til ykkar. Vona og veit að það hjálpar að aðrir hugsi vel til manns og geri sem mest af því.

Sendi ykkur öllum stórt baráttu KNÚS og óskir um allt hið besta.

Takk fyrir að leifa okkur að fylgjast með á blogginu.
Kv. Vigdís

Vigdís Guðjónsdóttir (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 14:20

4 identicon

Þið eruð algjörar hetjur, hugsa til ykkar mörgum sinnum á dag :*

 Baráttukveðjur frá mér og minni fjölskyldu..

Kveðja AndreaRós

AndreaRós (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 14:55

5 identicon

Bestu kveðjur og hlýjar hugsanir til ykkar alra!

kv Sigga Sk

Sigga Skúla (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 17:03

6 identicon

Elsku fjölskylda.  Sendi ykkur öllum hlýjar hugsanir og baráttukveðjur.  Þakka þér Álfheiður fyrir að leyfa okkur að fylgjast með líðan Pabba þíns á blogginu.  Hann er einn sá ótrúlegasti maður sem ég hef fengið að kynnast.

Bestu kveðjur, Ragnhildur (fyrrum búfræðinemi)

Ragnhildur Anna (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 20:18

7 identicon

Elsku fjölskylda, hugur okkar allra hér í Miðtúni er hjá ykkur. Megi guð vera með ykkur og gefa ykkur styrk.

 Bestu kveðjur Íris og fjölskylda

Íris B. Sigmarsdóttir (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 20:32

8 identicon

Elsku fjölskylda...

Hugur minn er hjá ykkur. Sendi ykkur öllum baráttukveðjur og hlýjar hugsanir..

Takk fyrir að leyfa mér að fylgjast með.

Með Kveðju Birgitta Dröfn

Birgitta Dröfn Þrastardóttir (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 21:29

9 identicon

Elsku Álfheiður og fjölskylda

Hugur minn er hjá ykkur.

Kveðja Selma Sigurðardóttir

Selma Sigurðardóttir (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 00:44

10 identicon

Sæl Álfheiður

Vildi gjarnan senda þér og þinni fjölskyldu baráttukveðjur og hlýjar hugsanir.  Hugur minn er með pabba þínum í þessari baráttu, sem ég veit að hann háir eins og honum er einum lagið með æðruleysi og hugprýði.

Kveðja

Reynir Jóhannsson

(Æskufélagi úr Hafnarfirði) 

Reynir Jóhannsson (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 09:13

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Bloggari

Álfheiður Sverrisdóttir
Álfheiður Sverrisdóttir
18 ára sveitasnót með ýmsar hugmyndir um lífið og tilveruna..

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband